201 Smári er nútímalegt borgarhverfi sem uppfyllir þarfir þeirra sem telja mikilvægt að nýta vel og njóta alls þess sem þeir eiga, fermetra jafnt sem tímann.
Í 201 Smára verða allir bílakjallarar útbúnir fullkomnum rafhleðslukerfum. Einnig verður rafhleðsla bíla möguleg í völdum stæðum í hverfinu.
Íbúðir 201 Smára eru búnar nýjustu snjalllausnum sem miða að hagkvæmni og þægindum. Snjallsímastýrður mynddyrasími, hitastýringar og margt fleira.
Frá 201 Smára er stutt í alla þjónustu, verslanir og íþróttaaðstöðu. Þá verður aðgengi að göngu- og hjólabrautum og almenningssamgöngum með besta móti.